Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þetta flækir málin svolítið

Ég er algerlega miður mín og helgin er ónýt. (&$&()5%$$ Þúsund þorskshausar frá Þistilfirði! Nú hugsar maður ekki um annað en af hverju Harry giftist ekki Hermione? Hvort Harry og Ron hefðu þá getað verið vinir áfram ef Harry og Hermione hefðu gengið í hjónaband? Af hverju í ósköpunum varð Hermione hrifinn af Ron en ekki Harry? Ron er svo vælinn. En ef Harry og Hermione hefðu gengið í hjónaband hvað hefði þá orðið um Ginny Weasley, systir Ron? Hefði hún orðið fúl við Harry og kannski byrjað með Draco Lucius Malfoy til að hefna sín? En hefðu Arthur og Molly Weasly samþykkt Malfoy sem tendason? Hann var á Slytherin heimavistinni. Hefði ekki allt breyst í Hogwarts? Þá hefði Malfoy frekar farið í Gryffindor og hann og Harry orðið vinir en ekki óvinir? Kannski að Ron hefði gengið í lið með Slytherin? Og hvað með Snape? Hann hefði þá líklega ekki verið svona drullu leiðinlegur við krakkana, sérstaklega Harry. Snape hefði sagt við þann sem ekki má nefna (Voldemort) að Harry væri bara fínn strákur. Voldemort hefði bara slakað á og einbeitt sér að því að ná líkamlegri heilsu og vinna að góðgerðarmálum. Kannski hefði Dumbledore verið vondi kallinn? Þá hefði aldrei þurft að skrifa allar þessar Harry Potter bækur? Og hvert er maður kominn þá? Ég get þetta ekki lengur. Þetta er allt of flókið fyrir óbeytta Mugga.
mbl.is Hermione hefði átt að giftast Harry
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forgangsröðun

Það fer meiri tími í það hjá ríkisstjórninni að skipta um ráðherra en hugsa um hag heimilanna.

Ríkisstjónin á að segja öll af þér. Það er ljóst að "Operation: Skjalborg"; tókst ekki. Atvinnulífið er lamað. Heimilin verulega löskuð. Ríkisstjónin veldur ekki verkefni sínu. Þess vegna á hún að víkja áður en hún veldur þjóði og landi meira tjóni en orðið er.


mbl.is Þingflokkar funda í allan dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gangi þér allt í haginn Jóhannes

Það er ekki hægt að deila um það að Jóhannes kaupmaður í Bónus gerði það sem engum öðrum tókst; að lækka matvöruverð á Íslandi verulega þegar enginn annar virtist hafa til þess viljann eða getuna. Hann kann að vera umdeildur en um þetta er ekki hægt að deila.

Jóhannes í Bónus er gjafmildur maður og gaf oft til líkarfélaga og annarra sem stöðu föllum fæti hér á landi. Hann fann til samfélagslegrar ábyrgðar meira en magur annar í hans stöðu.

Ég óska honum velfarnaðar utan Haga sem og í baráttunni krabbameinið og vona að hann hafi þar betur.


mbl.is Jóhannes hættir hjá Högum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhreinsað klósett gulli betra

Mér finnst óviðunandi að salerni hins fræga bandaríska rithöfunar JF Salinger, skuli ekki vera hreinsað löngu eftir að rithöfundurinn hætti að nota það. Ástæðan mun vera að rithöfundirinn "upphugsaði" sögur sínar þar (að sögn) á meðan hann "telfdi við páfann".

Mér finnst frjálshyggjan komin út í öfgar ef hægt er að selja fylgihluti "kúks" úr látnum fyrirmönnum fyrir stórfé.

Ég vona að íslenska ríkið sjái sóma sinn í að vernda salernið á Gljúrasteini þótt illa ári í efnahagslífi landsmanna nú um stundir - enda samdi Skáldið öll sín verk við skrifboðið þar á bæ eða á rölti í nágrenninu.

Björk á líka klósett. Er það menningarverðmæti?


mbl.is Salerni Salingers til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tapað fundið: ASÍ er týnt. Rífleg fundarlaun í boði

Hafi Þór Saari, Lilja Mósesdóttir og Hagsmunasamtök heimilanna þökk fyrir þeirra baráttu sem aðrir eiga að vera í. Þau berjast baráttu hins réttláta gegn aðilum sem áttu að verja heimili og fyrirtæki landsins gegn fjármálastofnunum. Á meðan horfir hin vinstri "velferðarstjórn" í gaupnir sér og aðrir sem eiga að verja hag heimilanna horfa upp í loftið eða eru týndir. Hvernig má þetta vera?

Þessir aðilar, FME og Seðlabankinn höfðu og hafa það hlutverk að hafa eftirlit með fjármálastofnunum landsins m.a. verja hag almennings og fyrirtækja og landsins í heild. Hingað til hefur það mistekist hraplega. Í hátt í áratug hafa FME og Seðlabankinn sofið Þyrnirósarsvefni og verið gjörsamlega meðvitundarlaus sem "lögregla" almennings og fyrirtækja gagnvart fjármálastofnunum með þeim afleiðingum sem allir þekkja. Eftir hin frægu "tilmæli" frá 30. júní sl. er Seðalbankinn og FME orðin að hagsmunagæsluaðila fyrir fjármálastofnanirnar. Með öðrum orðum hafa Seðlabankinn og FME tekið sér stöðu með bankastofnunum gegn almenningi.

Og hvar er ASÍ og verkalýðsforystan á meðan á þessu stendur? Ég þakka Guði fyrir að Hagsmunasamtök heimilanna hafa tekið að sér að standa vörð fyrir almenning gagnvart FME og Seðlabankanum auk bankastofnana. Ekki gerir ASÍ það.

ASÍ er líklega í sumarfríi.


mbl.is Borgi ekki umfram greiðsluáætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynjabundnir yfirburðir

Það var karlmaður sem sló heimsmet í að lita varir yfir 300 kvenna á einni klukkustund eða yfir 5 varir á mínútu. Þetta hlýtur að vera alvarlegt umhugsunarefni fyrir allar konur. Mér finnst að það eigi að setja kynjakvóta á Rick DiCecca.


mbl.is Afgreiddi 303 konur á klukkustund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innantóm loforð íslenskra stjórnmálamanna

Heilbrigðisráðherra mun hafa lofað Blönduósingum að skoða sérstaklega mál Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi. Stofnunin þarf, af einhverjum óskiljanlegum orsökum að sæta meiri niðurskurði heldur en flestar aðrar heilbrigðisstofnanir. Niðurskurðurinn er þó gríðarlegur víða annars staðar en sýnu meiri hjá Húnvetningum. Það er e.t.v. vegna þess að heilbrigðisráðuneytið telur Húnvetninga heilsuhraustari en gengur og gerist eða að heilsa þeirra, líf og limir, er talin minni virði en annarra Íslendinga. Annað hvort er það.

Heilbrigðisráðherra hefur uppi innantóm loforð um að málið verði skoðað. Það virðist ekki hafa verið gert. Eða kannski ráðherrann hafi einfaldlega gleymt þessum mótmælendum fyrir norðan sem hún talaði til? Það er reyndar ekkert nýtt að íslenskir stjórnmálamenn standi ekki við það sem þeir segja eða "gleymi" loforðum sínum og auðvitað alls ekki ef um er að ræða tiltölulega fá "atkvæði" eins og í Húnaþingi. Það vekur alltaf mun meiri athygli ef stjórnmálamenn standa við orð sín.

Það er ekki hægt að una við það að lítil heilbrigðisstofnun úti á landi þurfi að sæta blóðugri niðurskurði en aðrar sambærilegar stofnanir. Mismunun skal leiðrétta. Þess vegna standa nokkrir dugmiklir mótmælendur á Blönduósi upp enda er þeim misboðið. Ráðherrann hefur gefið sig út fyrir að ranglæti skuli leiðrétta. Hún og ráðuneyti hennar hefur gott tækifæri að sýna það í verki og leiðrétta þessa fáránlegu og ósanngjörnu mismunun sem Húnvetningar þurfa að búa við í heilbrigðismálum.


mbl.is Minna Álfheiði á heilsugæsluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ber að segja af sér? Ber ekki að segja af sér?

Guðrún Valdimarsdóttir segir sig af lista Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna - að því er virðist - tengsla eiginmanns hennar við fasteignafyrirtæki í Reykjavík.

Ég ætla ekki að taka afstöðu til hvort þessi ákvörðun Guðrúnar sem - virðist tekin undir þrýstingi frá oddvitanum Einari Skúlasyni - sé rétt eður ei. Ég þekki ekki til þessa máls nægilega vel. Hitt er annað mál að þessi endalausi ágreiningur milli forystumanna flokksins, með eða án hnífasetta, með eða án meintra flokkseigenda, er ekki til þess fallin að laða að fylgi sem flokknum vantar sárlega. Það bregst ekki fyrir sérhverjar kosningar að flokkurinn sé í sárum vegna innanflokksátaka. Það er á stundum skelfilega langt í samvinnufélagshugjónina sem flokkurinn kennir sig við og er falleg og góð. Hvað veldur?

Hvað sem segja má um mál Guðrúnar og Miðbæjareigna finnst mér eftirfarandi eðlilegra: Þeir þingmenn sem þáðu milljónir frá fyrirtækjum, þ.m.t. bönkum og fyrirtækjum "útrásarvíkinga" og sitja enn á þingi, menn (karlar og konur) sem sátu (í orðsins fyllstu merkingu) sofandi á verðinum og pökkuðu niður siðferði sínu og gagnrýnni hugsun ÆTTU AÐ SEGJA AF SÉR Á UNDAN GUÐRÚNU.


mbl.is Segir sig af lista Framsóknarflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég krefst rannsóknar

Á því hvaða íþróttaatvinnumenn hafi sængað hjá vændiskonu undanfarin 10 ára eða svo. Hverri einustu þúfu verði velt til að leita sannleikans. Allir þeir sem sekir hafi gjörst segi af sér knattspyrnuiðkun þegar í stað. Næst má huga að kvikmyndastjörnum, stjórnmálamönnum og poppstjörnum hvarvetna. Það er nauðsynlegt fyrir almenning að vita hverjir hafi notað og greitt fyrir þessarar elstu atvinnugreinar í heimi.
mbl.is „Ég elska þá alla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til fyrirmyndar.

Framsóknarflokkurinn hefur gert hreint fyrir sínum dyrum og beðið þjóðina afsökunar. Það er þakkarvert og til fyrirmyndar. Nú getur uppbyggingarstarf hafist í flokknum og hægt er að horfa til framtíðar.

Ætla forystumenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins að gera slíkt hið sama?


mbl.is Framsóknarflokkur biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband