Færsluflokkur: Tónlist

Freddie Mercury mesta rokkstjarna í heimi?

Ég er sammála því að Freddie Mercury úr Queen er flottur á toppnum sem mesta rokkhetjan fyrr og síðar í þessari kosningu. Skrýtið samt að Jaggerinn skuli bara rétt ná í 10. sætið. Hvað er það? Og hvar geyma menn Eddie Vedder úr Pearl Jam? Hvað er svo Ozzy Osbourne eiginlega að gera á þessum lista? Í burtu með hann.

Gaman væri að fá einhverja alvöru sambærilega könnun um íslenskrar rokkstjörnur. Rúni Júl heitinn myndi taka fyrsta sætið og Bubbi númer tvö. Þessi tvö sæti eru frátekin fyrir þessa snillinga.

Spurning með restina? Tillögur (sjá m.a. skoðanakönnun hjá mér hér til hliðar)?


mbl.is Mercury mesta rokkhetjan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Creed snýr aftur

Visir.is var með þessa frétt:

"Angurvær rödd heyrist aftur Scott Stapp og Creed eru á leið á tónleikaferðalag. Nordicphotos/Getty
Einhver umdeildasta hljómsveit síðari tíma, Creed, hefur ákveðið að koma saman aftur eftir fimm ára hlé. Creed hefur alltaf átt sér sterkan aðdáendahóp, þar á meðal hér á landi, en óhætt er að fullyrða að jafn stór hópur teljist vart til aðdáenda. Sumir ganga meira að segja svo langt að lýsa yfir hreinu hatri á Creed.

Söngvarinn Scott Stapp hefur lýst því yfir að Creed muni að minnsta kosti koma fram á 42 tónleikum í Bandaríkjunum á næstunni. Að tónleikaferðinni lokinni kemur út ný plata frá Creed, sem selt hefur 26 milljón plötur á ferlinum. „Ég saknaði strákanna minna og langaði að gera aftur tónlist með þeim," sagði Stapp í viðtali við Rolling Stone."

Frábært að fá bestu rokkara heims til baka.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband