Freddie Mercury mesta rokkstjarna í heimi?

Ég er sammála því að Freddie Mercury úr Queen er flottur á toppnum sem mesta rokkhetjan fyrr og síðar í þessari kosningu. Skrýtið samt að Jaggerinn skuli bara rétt ná í 10. sætið. Hvað er það? Og hvar geyma menn Eddie Vedder úr Pearl Jam? Hvað er svo Ozzy Osbourne eiginlega að gera á þessum lista? Í burtu með hann.

Gaman væri að fá einhverja alvöru sambærilega könnun um íslenskrar rokkstjörnur. Rúni Júl heitinn myndi taka fyrsta sætið og Bubbi númer tvö. Þessi tvö sæti eru frátekin fyrir þessa snillinga.

Spurning með restina? Tillögur (sjá m.a. skoðanakönnun hjá mér hér til hliðar)?


mbl.is Mercury mesta rokkhetjan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Svo finnst mér Jim Morison vanta - en ég hefði haldið að hann væri holdgerfingur hinnar villtu rokkstjörnu. Einnig Janis Joplin - John lennon eða Paul mccartney.

Brynjar Jóhannsson, 6.9.2010 kl. 17:56

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Sammála með Jim Morrisson. Lennon og McCartney eru samt eignlega frekar soft ekki satt. Frekar popparar heldur en eiginlegir rokkarar.

Guðmundur St Ragnarsson, 6.9.2010 kl. 18:22

3 Smámynd: Ragnar Einarsson

Freddy tekur fyrstu 10 sætin,,svo langbestur.

Ragnar Einarsson, 6.9.2010 kl. 19:11

4 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Haha. Góður Ragnar. Freddy var flottastur. Engin spurning :)

Guðmundur St Ragnarsson, 7.9.2010 kl. 16:07

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Úff - no comment :-)))))

Rósa Aðalsteinsdóttir, 7.9.2010 kl. 23:22

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Freddy Mercury var góður, en ég hefði sett bæði Jagger og Prestley upp fyrir hann. Líklega tekið Jagger framyfir, því Elvis átti til að fara út um víðan völl. 

En á íslenska listann set ég Rúnar efstan. Hann var gneistandi stjarna þótt mér hafi alltaf fundist Páll Rosinkrans besti rokksöngvarinn.

Ragnhildur Kolka, 8.9.2010 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband