Ég er sammála því að Freddie Mercury úr Queen er flottur á toppnum sem mesta rokkhetjan fyrr og síðar í þessari kosningu. Skrýtið samt að Jaggerinn skuli bara rétt ná í 10. sætið. Hvað er það? Og hvar geyma menn Eddie Vedder úr Pearl Jam? Hvað er svo Ozzy Osbourne eiginlega að gera á þessum lista? Í burtu með hann.
Gaman væri að fá einhverja alvöru sambærilega könnun um íslenskrar rokkstjörnur. Rúni Júl heitinn myndi taka fyrsta sætið og Bubbi númer tvö. Þessi tvö sæti eru frátekin fyrir þessa snillinga.
Spurning með restina? Tillögur (sjá m.a. skoðanakönnun hjá mér hér til hliðar)?
Það virðist vera sem annar hver landsliðsmaður Englands virðist hafa knýjandi þörf til að halda framhjá eiginkonunni - og þá helst með "háklassa" vændiskonu. Einnig virðist vera "lenska" hjá þessum piltum að láta athæfið komast upp.
Nú hefur Wayne Rooney fetað í fótspor ekki ómerkari manna en John Terry, Ashely Cole, Peter Crouch (a.m.k. og lílega eiga fleiri hneykslismál eftir að líta dagsins ljós), sem allir hafa það sammerkt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni.
Þurfi Rooney nú frí frá landsliðinu til að greiða úr flækjum í einkalífinu er ljóst að Fabio Capello landsliðsþjálfari er í miklum vandræðum. Ekki sérstaklega fyrir það í sjálfu sér að Rooney muni e.t.v. missa af næsta leik. Aðal höfuðverkur þjálfarans er að flestir landsliðs leikmenn Englands virðast vera gríðarlega heimskir og með greindarvísitölu lægri en landsliðsmenn annarra landa. Það er meiri hætta á það enskir landsliðsmenn missi af landsliðsleik vegna framhjáhalds heldur en meiðsla.
Allt ofangreint á þó auðvitað ekki við um landsliðsmenn Liverpool. Þeir eru öðrum enskum fremri í háttvísi, virðingu og trausti.
Það fer meiri tími í það hjá ríkisstjórninni að skipta um ráðherra en hugsa um hag heimilanna.
Ríkisstjónin á að segja öll af þér. Það er ljóst að "Operation: Skjalborg"; tókst ekki. Atvinnulífið er lamað. Heimilin verulega löskuð. Ríkisstjónin veldur ekki verkefni sínu. Þess vegna á hún að víkja áður en hún veldur þjóði og landi meira tjóni en orðið er.
Í millivegalengdahlaupum frá 800m (sem er e.t.v. frekar spretthlaup) og í 10km hlaup á braut eru yfirleitt notaðir hérar til að ná upp góðum hraða. Nú hefur frábær hlaupari frá Kenía, David Rudisha slegið heimsmetið í tvígang sem annar (danskur) Keníamaður setti fyrir 13 árum (sem einnig notaði héra).
Hinn breski Sebastian Coe hljóp 800m á 1:41.73 án héra árið 1981. Ég tel það vera meira afrek enda hljóp hann síðari hringinn nánast alveg einsamall.
Gott að Eiður Smári er kominn með klúbb.
Gott að Íslendingar eiga ekki lengur klúbbinn.
Gott að Eiður Smári geti þá e.t.v. gefið kost á sér í landsliðið?
Það er ekki hægt að deila um það að Jóhannes kaupmaður í Bónus gerði það sem engum öðrum tókst; að lækka matvöruverð á Íslandi verulega þegar enginn annar virtist hafa til þess viljann eða getuna. Hann kann að vera umdeildur en um þetta er ekki hægt að deila.
Jóhannes í Bónus er gjafmildur maður og gaf oft til líkarfélaga og annarra sem stöðu föllum fæti hér á landi. Hann fann til samfélagslegrar ábyrgðar meira en magur annar í hans stöðu.
Ég óska honum velfarnaðar utan Haga sem og í baráttunni krabbameinið og vona að hann hafi þar betur.
Frábært afrek hjá Gunnari Nelson. Hann er að sýna og sanna að hann er á réttri leið með að hætta að verða einn af efnilegustu bardagamönnum í heimi. Hann er einfaldlega ekki efnilegur lengur heldur mjög góður. Gunnar er að nálgast þá bestu í heiminum í sínum þyngdarflokki.
Það kemur að vísu ekki fram í fréttinni en ég held að drengurinn sé ósigraður ennþá.
Hinn mennski Tiger Woods (áður talinn ofurmenni) og hin sænska Elin Nordegren eru skilin. Það er hinn harði veruleiki sem allir kylfingar (líka þeir sem eru með 36 í forgjöf) verða að sætta sig við. Við sem einhvern tímann höfum stundað golf héldum að Tiger væri ósigrandi ofurmenni, fyrirmyndarfaðir og eiginmaður. Svo bregðst krosstré sem 3-tré (Callaway).
Skilnaðurinn er reyndar gleðiefni fyrir Svía en gjaldeyrirsvaraforði Seðlabankans þar í landi mun aukast umtalsvert þegar Elin flytur heim til Svíþjóðar með helming eigna Woods.
Andlegir yfirburðir Liverpool munu leiða þá til sigurs í kvöld þótt á útivelli sé.
Leikmenn Man. City spila fyrir launatékkann og eru uppteknir við að reikna út heildarlaun og launatengd gjöld og skattaafslátt á meðan leikmenn Liverpool spila með hjartanu fyrir sitt lið sem flestir elska (allavega meirihluti Íslendinga).
Liverpool tekur þennan leik 1-2.
YNWA.
Mér finnst óviðunandi að salerni hins fræga bandaríska rithöfunar JF Salinger, skuli ekki vera hreinsað löngu eftir að rithöfundurinn hætti að nota það. Ástæðan mun vera að rithöfundirinn "upphugsaði" sögur sínar þar (að sögn) á meðan hann "telfdi við páfann".
Mér finnst frjálshyggjan komin út í öfgar ef hægt er að selja fylgihluti "kúks" úr látnum fyrirmönnum fyrir stórfé.
Ég vona að íslenska ríkið sjái sóma sinn í að vernda salernið á Gljúrasteini þótt illa ári í efnahagslífi landsmanna nú um stundir - enda samdi Skáldið öll sín verk við skrifboðið þar á bæ eða á rölti í nágrenninu.
Björk á líka klósett. Er það menningarverðmæti?
Hafi Þór Saari, Lilja Mósesdóttir og Hagsmunasamtök heimilanna þökk fyrir þeirra baráttu sem aðrir eiga að vera í. Þau berjast baráttu hins réttláta gegn aðilum sem áttu að verja heimili og fyrirtæki landsins gegn fjármálastofnunum. Á meðan horfir hin vinstri "velferðarstjórn" í gaupnir sér og aðrir sem eiga að verja hag heimilanna horfa upp í loftið eða eru týndir. Hvernig má þetta vera?
Þessir aðilar, FME og Seðlabankinn höfðu og hafa það hlutverk að hafa eftirlit með fjármálastofnunum landsins m.a. verja hag almennings og fyrirtækja og landsins í heild.  Hingað til hefur það mistekist hraplega. Í hátt í áratug hafa FME og Seðlabankinn sofið Þyrnirósarsvefni og verið gjörsamlega meðvitundarlaus sem "lögregla" almennings og fyrirtækja gagnvart fjármálastofnunum með þeim afleiðingum sem allir þekkja. Eftir hin frægu "tilmæli" frá 30. júní sl. er Seðalbankinn og FME orðin að hagsmunagæsluaðila fyrir fjármálastofnanirnar. Með öðrum orðum hafa Seðlabankinn og FME tekið sér stöðu með bankastofnunum gegn almenningi.
Og hvar er ASÍ og verkalýðsforystan á meðan á þessu stendur? Ég þakka Guði fyrir að Hagsmunasamtök heimilanna hafa tekið að sér að standa vörð fyrir almenning gagnvart FME og Seðlabankanum auk bankastofnana. Ekki gerir ASÍ það.
ASÍ er líklega í sumarfríi.
Þessi úrslitarimma Celtics og Lakers stendur undir væntingum. Frábær körfubolti, spenna, dramatík, villuvandræði o.fl. Stöð 2 á þakkir skildar fyrir að gera NBA svona góð skil. Boston kemur væntanlega til með að vinna rimmuna í sjö leikja seríu - það er von vor og trú.
Á stundum mætti þó annar þulurinn draga úr frasakenndum lýsingum sínum á mönnum og málefnum og hafa uppi einfaldari, faglegri og lágstemmdari skýringar á leiknum. Helst að reyna stundum að vera minna fyndinn líka. Hástemmd síendurtekin orð, brandarar og setningar eru óþörf þegar leikurinn - sem er svo frábær - lýsir sér mest sjálfur og missir algjörlega marks þegar þetta er síendurtekið leikinn á enda. Ég hefði helst kosið að láta ameríska íþróttafréttamenn lýsa leiknum en það er víst ólöglegt (kannski ástæðan sé að enginn NBA áhugamaður skilur ensku).
Íþróttaþulurinn á ekki að reyna að yfirgnæfa leikinn. Það er auðvitað ekki hægt en þreytandi að hlusta á það. Brandarar og fyndnir frasar geta átt við og verið hluti af leiknum en bara alls ekki ekki í tvær klukkustundir takk fyrir.
Það þarf ekki að segja körfuboltaáhugamönnum fimm sinnum í einum og sama leiknum að Kobe sé frábær íþróttamaður eða PP sé með frábæra skottækni og hitt og þetta skotið sé "lygilegt", "ótrúlegt". Það þarf heldur ekki að segja okkur í hverjum einasta leik að K Perkins sé brúnaþungur og enginn vilji hitta hann í skuggasundi  um kvöld. Þeir sem vaka fram á morgun við að horfa á NBA vita allt þetta. Góður lýsandi glæðir leikinn lífi og kemur með faglegt álit á leiknum (hann má vera fyndinn inn á milli). Ég veit samt að Svali getur þetta alveg.
Það var karlmaður sem sló heimsmet í að lita varir yfir 300 kvenna á einni klukkustund eða yfir 5 varir á mínútu. Þetta hlýtur að vera alvarlegt umhugsunarefni fyrir allar konur. Mér finnst að það eigi að setja kynjakvóta á Rick DiCecca.
Heilbrigðisráðherra mun hafa lofað Blönduósingum að skoða sérstaklega mál Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi. Stofnunin þarf, af einhverjum óskiljanlegum orsökum að sæta meiri niðurskurði heldur en flestar aðrar heilbrigðisstofnanir. Niðurskurðurinn er þó gríðarlegur víða annars staðar en sýnu meiri hjá Húnvetningum. Það er e.t.v. vegna þess að heilbrigðisráðuneytið telur Húnvetninga heilsuhraustari en gengur og gerist eða að heilsa þeirra, líf og limir, er talin minni virði en annarra Íslendinga. Annað hvort er það.
Heilbrigðisráðherra hefur uppi innantóm loforð um að málið verði skoðað. Það virðist ekki hafa verið gert. Eða kannski ráðherrann hafi einfaldlega gleymt þessum mótmælendum fyrir norðan sem hún talaði til? Það er reyndar ekkert nýtt að íslenskir stjórnmálamenn standi ekki við það sem þeir segja eða "gleymi" loforðum sínum og auðvitað alls ekki ef um er að ræða tiltölulega fá "atkvæði" eins og í Húnaþingi. Það vekur alltaf mun meiri athygli ef stjórnmálamenn standa við orð sín.
Það er ekki hægt að una við það að lítil heilbrigðisstofnun úti á landi þurfi að sæta blóðugri niðurskurði en aðrar sambærilegar stofnanir. Mismunun skal leiðrétta. Þess vegna standa nokkrir dugmiklir mótmælendur á Blönduósi upp enda er þeim misboðið. Ráðherrann hefur gefið sig út fyrir að ranglæti skuli leiðrétta. Hún og ráðuneyti hennar hefur gott tækifæri að sýna það í verki og leiðrétta þessa fáránlegu og ósanngjörnu mismunun sem Húnvetningar þurfa að búa við í heilbrigðismálum.
Guðrún Valdimarsdóttir segir sig af lista Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna - að því er virðist - tengsla eiginmanns hennar við fasteignafyrirtæki í Reykjavík.
Ég ætla ekki að taka afstöðu til hvort þessi ákvörðun Guðrúnar sem - virðist tekin undir þrýstingi frá oddvitanum Einari Skúlasyni - sé rétt eður ei. Ég þekki ekki til þessa máls nægilega vel. Hitt er annað mál að þessi endalausi ágreiningur milli forystumanna flokksins, með eða án hnífasetta, með eða án meintra flokkseigenda, er ekki til þess fallin að laða að fylgi sem flokknum vantar sárlega. Það bregst ekki fyrir sérhverjar kosningar að flokkurinn sé í sárum vegna innanflokksátaka. Það er á stundum skelfilega langt í samvinnufélagshugjónina sem flokkurinn kennir sig við og er falleg og góð. Hvað veldur?
Hvað sem segja má um mál Guðrúnar og Miðbæjareigna finnst mér eftirfarandi eðlilegra: Þeir þingmenn sem þáðu milljónir frá fyrirtækjum, þ.m.t. bönkum og fyrirtækjum "útrásarvíkinga" og sitja enn á þingi, menn (karlar og konur) sem sátu (í orðsins fyllstu merkingu) sofandi á verðinum og pökkuðu niður siðferði sínu og gagnrýnni hugsun ÆTTU AÐ SEGJA AF SÉR Á UNDAN GUÐRÚNU.