Sögufölsun

Það vita allir að flestir íþróttafréttamenn mbl.is (og Morgunblaðsins þar með) halda með Man.Utd. Það er því pólitískt háalvarlegt að misbeita valdi sínu í þágu síns liðs með mjög óvandaðri og ótrúverðugri skoðanakönnun. Það væri meira mark tekið á skoðanakönnun frá Félagsvísindadeild HÍ eða Capasent Gallup.

Þrátt fyrir dapurt gengi Liverpool vita allir sem hafa smá vit á enska boltanum að félagið á langflesta stuðningsmenn hér á landi. Hið sama á við um hinn vestræna heim og víðar. Þetta staðfesta vísindalegar rannsóknir.


mbl.is Flestir halda með Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Farðu á bitur.is

Trúlaus (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 18:04

2 identicon

Það er spurn hversu oft Trúlaus hafi smellt á sitt lið því það er voða auðvelt að smella bara aftur og aftur og því algjörlega ómarktæk könnun.

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 18:15

3 identicon

Kemur ekki á óvart. Stuðningsmannaklúbbur Man.Utd á Íslandi er lang stærsti stuðningsmannaklúbbur á landinu. Þar eru um 2.300 meðlimir á meðan það eru umþb 1.700 í Liverpoolklúbbnum og enþá færri í öðrum. Þannig að þetta er staðreynd og það sem meira er að stuðningsmönnum United fer ört fjölgandi og þetta bil bara eftir að aukast á komandi árum.

Auðunn Atli (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 18:35

4 identicon

Ég vissi ekki að þessari könnun og ég tek ekki mark á henni.Ég get alvega viðurkennd að Man.utd og Liverpool eru með flesta stuðingsmenn á Íslandi.

Trúlaus (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 18:40

5 identicon

Reyndar er nú mbl.is/morgunblaðið krókt af Arsenal mönnum. En ekki United.

RagnarH (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 18:46

6 identicon

Þessi staðreynd þín er ekki rétt, Man Utd er með svo stórann fan base í Asíu að þeir eru með flesta áhangendur í heiminum.  Þó hef ég ekki hugmynd um hverjir eru með þanni stærsta hér á landi.

Júlíus Pálsson (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 19:01

7 identicon

Ég held að það hafi orðið viðsnúningur nú um áramótin og að nú renni öll vötn til Dýrafjarðar.

Traktorinn sem gekk svo vel í byrjun virðist vera farinn að hökta eitthvað og farinn að skjóta frá sér feilpústrum. Ferguson var góður í  árdaga en við verðum bara að viðurkenna það hans tími er liðinn, aftur á móti virðast strákarnir  í Lifrarpollinum  vera á uppleið og munu sennilega toppa á réttum tíma. Ég ætla svo að enda þetta með smá limru sem ég sendi yfirmanni mínum sem er mikill Manstu eftir júnætid maður.

Það skellir nú í skolta,
er United klúðrar bolta.
Hann Skúli ekki kætist,
er tapar Man United.
Þá er betra að vera kúl,
og styðja lið eins og Liverpool.
Það gera, Rabbi, Birgir, Gunnar og Geir,
Þurfum við nokkuð að ræða þetta meir?

kveðja

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 19:44

8 Smámynd: Björn Jónsson

Guðmundur!! Þú ert nú langt uppá Þórðarhöfða núna finnst mér, er þetta ekki þú þarna uppi ?

Björn Jónsson, 11.1.2010 kl. 19:57

9 identicon

Er einhver sjálfshátíð í gangi á mbl? Búandi til fréttir um eigin kannanir.

Það er í besta falli hæpið að gera ráð fyrir því að röð liðanna í þessari "skoðanakönnun" sýni rétta mynd af áhuga fólks. Ef þetta hefði komið fram í könnun hjá Gallup e.þ.h. fyrirtæki væri kannski mark takandi á þessu.

Rúnar G. (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 20:19

10 Smámynd: Jakob Jörunds Jónsson

Þessi niðurstaða sannar hið margkveðna að fólk er fífl

Jakob Jörunds Jónsson, 11.1.2010 kl. 21:21

11 identicon

Jakob,

   Þú ert þá væntanlega að meina niðurstöðu Guðmundar

Bárður (IP-tala skráð) 11.1.2010 kl. 21:48

12 identicon

Það er magnað hvað áhugi fólks á einhverju getur gert annað fólk biturt.

Elvar (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 01:00

13 identicon

Er ekki lágmark að vera með einhverjar staðreyndir á hreinu áður en menn byrja að básúna á netinu Auðunn Atli? Hefur greinilega ekki hugmynd um stærð stuðningsmannaklúbbanna á Íslandi, svo mikið er víst.

SSteinn (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 09:20

14 identicon

Sælir núna. Glory glory Manchester United.

Axel (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 10:25

15 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Takk fyrir komuna allir ekki síst Man. Utd. aðdáendur. Ég ber reyndar mikla virðingu fyrir því ágæta liði (þótt Sir Alex fari hræðilega í taugarnar á mér enda búinn að landa allt of mörgum titlum fyrir Manjú). Ég vona að allir United aðdáendur haldi áfram baráttunni og og vona sérstaklgea að Trúlaus og Björn Jónsson haldi áfram að vera vinir mínir :)

Ég er mjög langt frá því að vera bitur þótt ég játi að ég gráti mig í svefn á hverju kvöldi yfir lélegu gengi minna manna og vilji slíta stjórnmálasambandi við Rafael Benítez. Bitur! HVer er bitur?????

En sem fyrr: YNWA.

Guðmundur St Ragnarsson, 12.1.2010 kl. 18:15

16 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Takk fyrir góða limru Rafn. Þú ert snillingur :)

Guðmundur St Ragnarsson, 12.1.2010 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband