Hvað er að fólki?

Ef mér hefur einhvern tímann verið misboðið þá er það þessi niðurstaða. Ég geri ráð fyrir að kjósendur í könnuninni séu fyrst og fremst konur og samkynhneigðir karlmenn. Ég ber virðingu fyrir báðum þessum þjóðfélagshópum en hér er mér misboðið. Auminginn hann Daniel Craig var kosinn flottastur. Hann sem hafði ekki einu sinni haldið á leikfangabyssu áður en hann fór að leika James Bond. Hvað er eiginlega að ske? Borat stendur annars náttúrulega upp úr þessum hóp sem kjósa átti á milli sem sína löngu og mjóu hvítu fótleggi.

Ég spyr af hverju var ekki bardagahetjan Chuck Norris í þessari könnun? Hann er mestur manna sem gengið hefur um á þessari jörð að Jesú undanskildum.

---

Þessi pistill er skrifaður af gagnkynhneigðum hvítum karlmanni og endurspegla skoðanir hans engan veginn afstöðu mbl.is. Áskilinn er réttur til samkynhneigðar ef Chuck Norris kemur til Reykjavíkur.


mbl.is Craig með besta búkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þú segir það. Þetta er skrýtið.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 18:01

2 identicon

Chuck Norris !? Hvað með Jean Claude Van Damme ? Eða Arnold í "Red Heat" - fræga rússneska baðatriði þar sem hann barðist berrassaður...

Gvuð ! Þetta hljómar allt eins og ég geri ekkert annað en að skoða bera líkama í bíó  Hehehe

Margrét Þórðardóttir (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 18:08

3 Smámynd: Vilma Kristín

Hank Azaria hefði fengið mitt atkvæði...

Vilma Kristín , 6.9.2009 kl. 20:01

4 identicon

Útlit skiptir öllu máli

innrætið þó tíðin brjáli,

hjarta geri hart úr stáli,

heilann líkt og væri af káli.

sveinn (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 20:36

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Komst  Allen Stewart Königsberg ekki á blað?  Hann er sko kroppur.

Fyrir þá sem ekki vita hver kroppurinn Köningsberg er, þá er hann betur þekktur sem Woody Allen.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.9.2009 kl. 21:12

6 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Góð staka Sveinn. Takk öll fyrir innlitið.

Guðmundur St Ragnarsson, 6.9.2009 kl. 22:46

7 identicon

Hvað með mig.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 18:17

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.9.2009 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband