Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Einhver tilkynni Samkeppniseftirlitinu brotið

Það er gróf brot á samkeppnislögum að ríkisstarfsmenn eins og jólasveinarnir skulu mismuna fyrirtækjum í einkageiranum. Ég hef ekkert á móti Jarðböðunum í Mývatnssveit en af hverju styrkja jólasveinarnir eingöngu Jarðböðin fyrir norðan en láta ekki sjá sig í Bláa lóninu sem er með sambærilegan rekstur. Mér er alveg sama þótt jólasveinarnir hafi verið að skemmta sér í Dimmuborgum það er engin afsökun- þetta er alvarlegt brot á samkeppnislögum og þeir verða að sinna fólki fyrir sunnan líka.

Svo fara þeir bara á prjónabrókunum út í jarðböðin. Er þetta leyfilegt með tilliti til krafna um eðlilegt hreinlæti sem við gerum á baðstöðum. Ekki má almenningur fara í prjónabrókum eða brókum yfirleitt ofan í böðin?

Ég skora á jólasveinana, sem flestir vita að búa í Esjunni, að gera bragarbót á og heimsækja Bláa lónið hið snarasta.


mbl.is Jólasveinar fóru í Jarðböðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtök fjármálafyrirtækja lýsa upp skammdegið

Það er mikil þörf á því að vekja athygli á þeirri ákvörðun Reykjavíkurborgar að draga úr götulýsingu og auka myrkrið enn frekar í skammdeginu. Annars er hætta á því að fólk verði of bjartsýnt í kreppunni.

Ég var að keyra Kringlumýrarbrautina (til norðurs) á milli Garðabæjar og Kópavogs ca 10:15 í morgun þegar skyndilega dimmdi ákaflega og öll ljós slökknuðu. Ég hélt fyrst að dómsdagur væri kominn en það gat ekki verið því árið 2012 er ekki komið. Ástæðan var þá sú að Hanna Birna vill spara pening og draga úr óþarfa lýsingu á götum borgarinnar yfir vetrartímann. Ég komst þó klakklaust á leiðarenda þótt myrkrið grúfði yfir borginni og eirði engu.

Ég skil vel að spara þurfi hjá borginni. Mér finnst líka að það ætti að skipta út öllum 40w perum á skrifstofum kjörinna borgarfulltrúa hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu og notast við 15w perur í staðinn. Með þessu væri auðveldlega hægt að spara allt að 100.000 þúsund á ári.

Mér finnst skemmtilegt að SFF (Samtök fjármálafyrirtækja) séu að vekja athygli á þessari staðreynd en ekki hagsmunaaðilar eins og Vegagerðin, lögreglan, FÍB eða aðrir. Í fréttinni segir reyndar að innan SFF séu tryggingarfélög en þetta hljómar eitthvað skrýtið. Eru ekki til hagsmunasamtök tryggingarfélaga?


mbl.is Segja sparnað í lýsingu skapa hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég nokkuð of neikvæður?

Ef ég er svolítið hugsandi yfir þessum ,,árangri" karlalandsliðsins í borðtennis? Liðið lenti í 41. sæti á Evrópumóti landsliða í Þýskalandi. Hvað kepptu mörg lið á mótinu?

Hvað eru annars mörg lönd í Evrópu? Töpuðum við kannski fyrir Vatíkaninu líka? Var einhver andsnúinn Borðtennissambandinu sem lak þessari frétt?


mbl.is Ísland í 41. sæti á EM í borðtennis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugasamir fjárfestar

Ég er að reyna að átta mig á þessari frétt frá viðskiptadeild mbl.is. Hún er svona í stuttu máli: Dularfullir og ónafngreinir aðilar hafa samband við einkafyrirtæki, þ.e. Kaupás (Nóatún) og vilja kaupa fyrirtækið. Þeir fá gögn en ekkert varð af sölunni. Hver er fréttin? Mér sýnist þetta frekar líkjast auglýsingu um fyrirtæki til sölu en ekki frétt.

Skrýtin fyrirsögn líka með þessari frétt. Fjárfestarnir voru samt ekki áhugasamari en svo að þeir keyptu ekki!


mbl.is Fjárfestar áhugasamir um verslanir Nóatúns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrst norskur seðlabankastóri - nú þetta?

Megum við Íslendingar ekki eiga neitt út af fyrir okkur lengur. Eitt helsta menningarvígi Íslands er nú fallið. Takk Mjólkursamsala! Farið er að selja íslenskt skyr í Noregi! Skyr er reyndar eingöngu íslenskt. Ef ég þekki Norðmenn rétt hætta þeir ekki fyrr en þeir verða búnir að telja sjálfum sér trú um að skyr sé norskt að ætt og uppruna sem og að auglýsa það út á við. Alveg eins og þeir reyndu að stela Leifi Eiríkssyni frá okkur.

Íslenska fótboltalandsliðið gerði aðeins jafntefli við skítlélegt norskt lið sem gæti ekki unnið norska kvennalandsliðið á góðum degi. Við erum umvörpum farin að flytja aftur til gamla landsins. Einn æðsti embættismaður landsins var norskur (nýhættur þó blessunarlega). Norðmenn ætla að vinna olíuna okkar á Drekasvæðinu. Geir Hilmar Haarde og Siv Friðleifsdóttir eru norsk að uppruna. Og hvað hafa allir þessir Norðmenn verið að gera hjá Liverpool? Það mætti segja mér að Norðmenn séu að taka yfir okkar þjóðfélag smátt og smátt án þess að við tökum eftir því.

Verður maður ekki að fara að æfa sig og segja "heja Norge"?


mbl.is Skyr slær í gegn í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að fólki?

Ef mér hefur einhvern tímann verið misboðið þá er það þessi niðurstaða. Ég geri ráð fyrir að kjósendur í könnuninni séu fyrst og fremst konur og samkynhneigðir karlmenn. Ég ber virðingu fyrir báðum þessum þjóðfélagshópum en hér er mér misboðið. Auminginn hann Daniel Craig var kosinn flottastur. Hann sem hafði ekki einu sinni haldið á leikfangabyssu áður en hann fór að leika James Bond. Hvað er eiginlega að ske? Borat stendur annars náttúrulega upp úr þessum hóp sem kjósa átti á milli sem sína löngu og mjóu hvítu fótleggi.

Ég spyr af hverju var ekki bardagahetjan Chuck Norris í þessari könnun? Hann er mestur manna sem gengið hefur um á þessari jörð að Jesú undanskildum.

---

Þessi pistill er skrifaður af gagnkynhneigðum hvítum karlmanni og endurspegla skoðanir hans engan veginn afstöðu mbl.is. Áskilinn er réttur til samkynhneigðar ef Chuck Norris kemur til Reykjavíkur.


mbl.is Craig með besta búkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurskoðandi á villigötum

Mér er sama þótt maðurinn sé frá Kongó. Mér er sama þótt hann sé blökkumaður með háskólapróf í debet og kredit. Þessi endurskoðandi er fólk er fífl. Hann á að handtaka þegar í stað og setja í ævilangt gæsluvarðhald eftir að fram hefur farið óháð geðheilbrigðisrannsókn á honum.

Bienvenu Mbutu Mondongo heitir endurskoðandinn og nafnið út af fyrir sig er lögreglumál. Þessi reikningshaldari lætur sér ekki nægja að heita óviðráðanlegu nafni heldur reynir hann að sverta Tinna, eilífðarhetju okkar Vesturlandabúa. Hann er sakaður um kynþáttafordóma. Það er fáránlegt! Allt eins má spyrja hvort ekki megi saka Tinna um fordóma gangvart glæpamönnunum sem hann svo hetjulega barðist á móti og hafði ávallt sigur. Tinni hefur verið grunaður um að vera samkynhneigður vegna þess að honum þótti vænt um vini sína og hafði tilfinningar þótt hann væri hetja. Ég vísa þannig hugleiðingum "straight" til föðurhúsanna. Hann var líka sakaður um að hata Japani og halda með Kínverjum. Gott ef Inkarnir í Perú höfðu ekki horn í hári Tinna einnig. Munum það að þessi hetja hefur komið til Íslands.

Mondango má fara til Mannréttindadómstóla Evrópu mín vegna. Hann mun samt ekki hafa erindi sem erfiði. Tinni mun næsta auðveldlega koma honum á bak við lás og slá með aðstoð Kolbeins kafteins, hundsins Tobba og lögreglutvíburanna Skafta og Skapta.

Vesturlandabúar! Sláum tjaldborg um Tinna!


mbl.is Tinna stefnt fyrir kynþáttafordóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers á starfsfólk Alþjóðahúss að gjalda???

Er framkvæmdastjóri Alþjóðahússins að segja upp öllu starfsfólkinu til að knýja á lausn hjá Reykjavíkurborg? Af hverju ræða mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri Alþjóðahússins ekki saman og leysa málið eins og siðmenntað fólk. Nei í staðinn ákveður framkvæmdastjórinn að segja upp ÖLLU starfsfólki á Alþjóðahúsi að því er virðist til að þrýsta á mannréttindastjórann sem svarar að það vanti ennþá skýrslu og ekki hægt að greiða rekstrarféð? Ekki beint í anda mannréttinda hvort sem einhver sérstök sök liggur hjá mannréttindastjóranum eða framkvæmdastjóranum - skiptir ekki máli.

Svona aðferðafræði í stjórnsýslunni er til háborinnar skammar. Saklausir starfsmenn eru látnir gjalda fyrir þrjósku og lítt lipra samskiptahátta þessara "stjóra". Hvar er Hanna Birna?


mbl.is Öllu starfsfólki Alþjóðahúss sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfall fyrir kvikmyndaáhugafólk

Þetta er hræðilegur atburður. Þessi videoleiga var sú besta á landinu fyrir unnendur kvikmynda. Þarna voru til sjaldgæfar myndir sem ekki fengust annars staðar. Ég fór oft á þessa leigu og leigði mynd. Ég hef gaman af norrænum myndum og þarna var langbesta safn þeirra á landinu.

Ég vona svo sannarlega að Gunnar nái að endurreisa leiguna.


mbl.is „Opnum eins fljótt og hægt er“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbyggðarfréttir

Þetta er með jákvæðari fréttum sem ég hef heyrt frá því að kreppan mikla skall á. Það hefði verið beinlínis hættulegt ef umræddur maður hefði ætlað að kasta af sér þvagi við bíl Á FERÐ. Með þessari háttsemi sýndi viðkomandi bæði ábyrgð og stillingu þegar hann ákvað að nota "kyrrstæðan" bíl fyrir salerni. Það er þó ljóst að með því að pissa fyrir framan lögreglustöðina var hann að gefa yfirvaldinu á staðnum ákveðin andleg skilaboð.

Ég var farinn að hafa áhyggjur af Ísfirðingum og hélt að þeir væru alveg hættir að kasta af sér þvagi á almannafæri. Ég bíð spenntur eftir næstu stórfrétt frá Ísafirði. "Ísafjörður, þar sem hlutirnir gerast"


mbl.is Pissaði framan við lögreglustöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband