Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvað er að gerast í Hólminum?

Öðruvísi mér áður brá. Snæflell er með hæsta og líklega eitt kröftugasta lið landins, a.m.k. undir körfunni. Menn sem eru hoknir af reynslu. Ég hélt að Hólmara þyrsti í titilinn en mér hefur sýnst Grindvíkinga langa miklu meir í úrslitin gegn mínum mönnum í K.R. Sóknarfráköstunum fer snar-fækkandi.

Eru þeir rauðhvítu að linast?


mbl.is Að duga eða drepast fyrir Snæfellinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Welcome to Iceland

Afar ánæguleg tíðindi og löngu, löngu tímabær. Það er vonandi að Eva Joly og hennar fólk verði að góðu gagni við að upplýsa hlutina. Íslensk þjóð þarf á því að halda.

Vertu velkomin til Íslands, frú Joly. Takk fyrir framkvæðið og dugnaðinn Hr. Helgason, að fá hana hingað til lands því ekki höfðu stjórnvöld vit á því.


mbl.is Joly sérstakur ráðgjafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

David Silva er góður kostur

Það yrði frábært að fá þennan eðalleikmann frá Valencia, gamla félaginu Senjor Benítes. En er hann ekki miðjuleikmaður? Mér finnst vanta góðan sóknarleikmann frammi með "Stráknum" til að þétta gott lið enn frekar.

Góðar stundir

Muggi.


mbl.is Benítez: Er ekki á höttunum eftir Silva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðurbakkinn í Hafnarfirði

Mikið skelfingar ósköp er ég sammála Magnúsi Skúlasyni um skipulagsslysin hér á landi. Forsvarsmenn bæjarstjórnar og skipulagsyfirvalda í Hafnarfiri ættu að vera neyddir til að flytja sjálfir í húsin í Norðurbakkanum til að upplifa hryllinginn af eigin raun.

Norðurbakkinn í Hafnarfirði var kjörið tækifæri til að byggja frábært brygguhverfi, líklega það skemmtilegasta á landinu. Hverfi sem hægt hefði verið að tengja við miðbæinn á skipulagslega skemmtilegan hátt. Nei það þurfti að hrúga eins miklu byggingarmagni og leyfilegt er og sem verktakinn hefur sjálfsagt krafist. Engin sjálfstæð hugsun hjá skipulagsyfirvöldum í Hafnarfirði. Engin gagnrýnin hugsun. Sem sagt skipulagsslys!

Eftir standa stór, auð og virkilega ljót hús. Hver gat samþykkt þetta svona? Þessi hús munu því miður ekki verða rifin og standa því þarna um ókomin ár, Hafnfirðingum og öðrum til ama og leiðinda.


mbl.is Verstu skipulagsslysin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún gleymir lið nr. 7

Áframhald á upptalningu Ingibjargar Sólrúnar á ástæðu hrunsins á Íslandi sem hún gleymdi að minnast á:

7. Algjör skortur á eftirliti og aðgerðum íslenskra stjórnvalda og þeirra stofnana sem stjórnvöld bera ábyrgð á. Algert aðgerðarleysi stjórnvalda, þ.m.t. ríkisstjórnarinnar, þegar ljóst var í upphafi ársins 2008 hvert stefndi. Algjör vanhæfni og athafnaleysi við upphaf hrunsins og máttleysi við að slá hina svokölluðu "Skjaldborg" um heimili landsins, eins og lofað var og aðstoð til fyrirtækja til að snúa hjólum atvinnulífsins í gang.


mbl.is Siðrof í íslensku samfélagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú átt hrós skilið Geir!

Loksins kom afsökunarbeiðni. Loksins játað að mistök voru gerð. Geir hefði mátt gera þetta miklu fyrr og þá beint til þjóðarinnar allrar í staðinn fyrir að gera það í opnunarávarpi til samflokksfélaga. En þetta er líklega góð tímasetning svona "PR-lega".

Batnandi mönnum er best að lifa. Hrósa ber fyrir það þegar menn iðrast og játa mistök. Nú bíður maður eftir að heyra í Ingibjörgu Sólrúnu, Össuri og viðskiptaráðherrunum fyrrverandi Björgvini og Valgerði. Þau þurfa líka að gera hreint fyrir sínum dyrum.

Eða hvað?


mbl.is Mistök gerð við einkavæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hipp hipp, húrra!

Afar gleðileg tíðindi og löngu tímabær en batnandi fólki er best að lifa. Þegar við bætist Eva Joly og sérfræðingar á hennar vegum er þetta að stefna í rétta átt.

En af hverju var þetta ekki gert fyrir 5-6 mánuðum?


mbl.is Saksóknari fær 16 fastráðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bla bla bla bla bla bla bla bla

Svona hljóðar tilvitun í ráðherranna fyrrverandi: Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi viðskiptaráðherra, telur ljóst að einhver mistök hafi verið gerð við einkavæðinguna. „Hins vegar er ómögulegt að fullyrða að þau hafi verið svo alvarleg að það hefði breytt einhverju um það sem við stöndum frammi fyrir núna.“

Ég hefði haft fréttina svona: Valgerður sagði bla, bla bla, kannski, bla bla, e.t.v., bla bla bla. Hún sagðist ennfremur bera sko alls enga ábyrgð þótt hún hafi verið bankamálaráðherra þegar bankarnir voru einkavæddir og málið hafi verið illa unnið og fyrirséð hafi verið að bankarnir voru einkavinavæddir. Aðspurð segir ráðherrann fyrrverandi engu máli skipta þótt Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson hafi mynd af henni á náttborðum sínum sem þeir kyssa alltaf góða nótt áður en þeir kyssa eiginkonurnar og fara að sofa.


mbl.is Segja að mistök hafi verið gerð við einkavæðingu bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt leikur í lyndi hjá Frjálslyndum

Getur ekki einhver miskunnasamur ekki hjálpað þessum flokki að binda enda á líf sitt svo eigin flokksmenn þurfi ekki að gera það sjálfir. Það lítur betur út svona á pappírunum.

Farsinn í kringum þennan svokallaða stjórnmálaflokk er þannig að það tæki 5 heila Spaugstofuþætti að lýsa ósköpunum.


mbl.is Ásgerður hættir í Frjálslynda flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugrekki

Ég hef lesið bókina Gomorra eftir Roberto Saviano. Hvernig allt mannlíf, viðskiptalíf og opinber starfsemi er gegnumsýrt af Mafínunni í Napolí og nærsveitum er ótrúlegt. Mafían er beinlínis hluti af hagkerfinu og stjórnmálunum einnig. Ég dáist að mönnum eins og Saviano sem þora að segja sannleikann opinberlega og eru í lífshættu af þeim sökum.

Ég held reyndar að talan níuhundruð eins og segir í fréttinni sé stórlega vanáætluð og nær að tala um þúsundir manna ef verið er að tala um áratugi. Þetta á sér stað í vestrænu ríki. Mannfallið er meira en í stríði Palistínumanna og Ísraels.

Ég vona að fram komi einstaklingar hér á landi sem þori að segja sannleikann líka!


mbl.is Mafíunni mótmælt í Napólí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband