Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Heilsuveilir norskir eldislaxar

Þeir eru svo heilsuveilir, norsku eldislaxarnir, að þeir myndu umsvifalaust axlarbrotna í útreiðatúr í íslenskri sveit ef hesturinn myndi hnjóta lítillega.

Svo vilja menn fara að erfðabreyta matvæli á Íslandi. Komm on!


mbl.is Helmingur eldislaxa með hjartakvilla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn sinni sínum "daglegu"störfum.

Ég óska virðulegum forseta góðs bata. Það eina jákvæða við axlarbrot Ólafs Ragnars er að hann datt á heilaga húnverksa foldu nálægt heilögum húnverskun sögustað, Borgarvirki. Hætt er við því að miklu verr hefði farið ef hann hefði t.d. dottið af hestbaki annars staðar, t.d. á Hellu eða í Ólafsvík.

Að sögn forsetaritarans mun hann þrátt fyrir slysið sinna áfram sínum "daglegu" störfum. Það er vel. Hitt er verra að það virðist ekki vera hluti af daglegum störfum forsetans að stappa stálinu í landann - vera sameiningartákn lands og þjóðar. Mér er nokk sama þótt einhverjir segi að Ólafur hafi klúðrað öllu með því að vera "grúpppía" hjá útrásarvíkingunum. Hann á alveg séns ennþá gagnvart þjóðinni en þó eingöngu ef hann sýnir sjálfur alvöru auðmýkt og iðrun án mikilla leikrænna tilburða.

Það er margt gott við Ólaf Ragnar og hann er leiðtogi í eðli sínu þótt það hafi ekki sést frá síðasta hausti. Ég held að hann og þá ekki síður hinn glæsilega forsetafrú geti hjálpað til við endurreisn landsins og þá fyrst og fremst með því að stappa stálinu í fólk og ferfætlinga. Endurreisnin felst nefnilega ekki eingöngu í efnahagslegum bata heldur einnig sálrænum bata þjóðarinnar. Við erum sterk þjóð sem þó þarf á sálrænni áfallahjálp að halda sem heild. Ef forseti stígur ekki fram og verður hluti af áfallahjálpsteyminu á hann að segja af sér strax. Andvirði af kostnaði embættisins getur þá runnið til Mæðrastyrksnefndar í staðinn.

En ég vona ennþá og ég vona ennþá að Ólafur Ragnar hætti að hugsa undir feldinum og sinna mismerkilegum "daglegum störfum" og stígi fram og verði sá leiðtogi sem hann var kosinn til að vera.

Góðar stundir.


mbl.is Forsetinn í aðgerð í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tara Líf er þjófahlíf

Ég hef hitt þennan frækna hund og eigandann líka. Ég get vitnað um það að Töru Líf er umhugað um að vernda heimili sitt og eiganda síns og vei þeim manni sem reynir að brjótast þar inn. Ég óska eigandanum og Töru til hamingju með að hrekja þennan ólánsama þjóf á flótta með bitför í kálfa og eilítið brotna sál.

Ég spái því að nú sé gósentíð í vændum hjá hundaræktendum.


mbl.is Hundur stökkti þjófi á flótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gilltette - the best a man can get

Ég var í afar erfiðri aðstöðu núna um daginn.

Ég hef notað Gilletta raksköfu og - blöð í nokkuð ríflega tuttugu ár (sem út af fyrir sig er nægjanlegt til að fá krónískt kvíðakast yfir) enda ekki verið mikið úrval á sambærilegri vöru miðað við verð og gæði. Að þessu leyti nær jafnrétti ekki til okkar karlmanna en hvað um það. Svo ákvað ég að brjótast út úr meðalmennskunni.

Ég ákvað að nota tækifærið og stíga inn í óttann og fjárfesta (það er orð sem notað er þegar fjármunir manns eru notaðir í gríðarlega óhóflega dýra vöru) í einu samkeppisvöru Gilltette a.m.k. hér á landi, þ.e. WILKINSON sköfu og rakblöðum. Allnokkru fátækari en glaður í bragði hélt ég heim á leið eftir stutta heimsókn í Lyfju Lágmúla. Um leið og kalt WILKINSON rakblaðastálið snart hörund mitt nokkru síðar og skar af hárbroddana vissi ég að ég hafði brotið á bak aftur áralanga einhliða neysluhyggju einstaklings. Ég hafði unnið sigur á innrætingu auglýsinga Gillette og gefið skít í að það væri endilega það besta sem "maður" gæti fengið.

Ég er samt feginn að vera ekki kona og þurfa að velja og hafna úr þúsundum vara á snyrtivörumarkaðnum. Ég er ánægður og ég nota WILKINSON í andlitið á mér daglega. Skítt með það þótt þetta sé bresk vara...


Frábærar fréttir fyrir Húnvetninga nær og fjær

Það yrði gríðarlega jákvætt fyrir atvinnulífið á Blönduósi og nágrenni ef gagnaver Greenstone yrði að veruleika. Það má ekki heldur gleyma því að gagnaverið myndi örugglega styrkja byggðina á Skagaströnd líka sem er ekki nema í rúmlega 20 km fjarlægð frá Blönduósi.

Mínar innilegustu hamingjuóskir norður en eins og annar bloggari skrifaði hérna að "kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið" en vonum að kálið smakkist vel að lokum.


mbl.is Talið líklegast að risavaxið gagnaver rísi á Blönduósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afdrifarík ákvörðun

Hvernig dettur fólki í hug að reyna að fremja lögbrot í umdæmi Blönduóslöggunnar? Þar eru bestu, duglegustu og líklega fallegstustu fulltrúar löggæslu lands þessa.

Þessi ólánsami ökumaður hefur vonandi lært af reynslunni og keyrir næst austurleiðina til Reykjavíkur.


mbl.is Fíkniefnaakstur við Blönduós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra sem þorir að tala hreint út

En hvað skyldi Jóhanna Sigurðardóttir og hennar félagar segja við hreinskiptinni og eðlilegri yfirlýsingu Jóns Bjarnasonar? Ég vona að Jón Bjarnason þurfi ekki á opinberri eineltisáæltun að halda hér eftir þegar Samfylkingarþingmenn hitta hann í vinnunni í næstu viku.

Ég spái því að nú rigni kvörtunum Samfylkingarfólks - vegna þess að ráðherra skuli leyfa sér að hafa skoðun andstæða þeim í ESB málinu - yfir Steingrím Joð.

Áfram Jón! Ekki láta kúga þig til þagnar í þessu máli.

P.S. Ég var ekki fyrr búinn að senda inn þessa færslu þegar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkinarinnar hafði krafist þess að Jón segði af sér skv. ruv.is. HVAÐ SAGÐI ÉG!!!


mbl.is Vill fresta umsóknarferli ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur bjartsýni runninn upp fyrir 10 milljónir (íslenskar krónur)

Það er nauðsynlegt að líta á björtu hliðarnar á þessum erfiðu tímum og "berja" bjartsýni í landann, trú og von. En...

Einhvern veginn slær þessi "verkáætlun" ríkisstjórnarinnar mig þannig að verið sé að búa til "bjúrókratískt" apparat svona meira til að sýnast út á við. Þetta verkefni fær heilar 10 milljónir sem er ekki há fjárhæð til að koma Íslandi Í FREMSTU RÖÐ Í VERÐMÆTASKÖPUN, MENNTUN, VELFERÐ OG "SÖNNUM" LÍFSGÆÐUM". Einnig er markmiðið að "stuðla að sterku samfélagi og vænlegum lífsgæðum til framtíðar" (ég nánast táraðist við að lesa þessi glæstu markmið). Þetta er ekki há fjárhæð þegar það er haft í huga að þessar 10 milljónir eru íslenskrar krónur. Fyrir þá fjárhæð má líklega kaupa eins og tvo nýja fólksbíla eins og gengið er á krónunni í dag.

Ein bestu lífsgæði í siðuðu þjóðfélagi er að hafa öfluga löggæslu til verndar fyrir borgarana. Nú liggur fyrir mikill niðurskurður á fjárframlögum hins opinbera til lögreglunnar. Er ekki eðlilegra að hætta við þennan niðurskurð hjá lögreglunni og sýna borgurum þessa lands fram á að ríkisstjórnni sé annt um okkar raunverulegu "lífsgæði". Nei í staðinn á að bjóða okkur upp á 20/20 nefnd sem hefur til umráða allt of fáar milljónir af íslenskri mynt til að flikka upp á vonlausa ímynd og stöðu landsins nú um stundir.

Núna er því miður tími varnarbaráttu hjá íslenskri þjóð. Þjóðin hefur nóg með að greiða vexti af ICESAVE klúðri núverandi/fyrrverandi stjórnvalda næstu 7 árin. Tími fyrir sóknina er ekki kominn ennþá - hvað þá fyrir 10 milljónir íslenskra króna. Að segja annað ber vott um alvarlega afneitun.


mbl.is Ísland skipi sér á ný í fremstu röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PDG flokkurinn í Gabon tekur tímamótaákvörðun.

Ég hef gaman af erlendum fréttum, sérstaklega þeim jákvæðu. Mér finnst gaman að fræðast um það sem gengur á í heiminum enda góð tilbreyting frá endalausum neikvæðum kreppu-, Icesave- og ESB fréttum hér á landi.

Ég hef gaman af því að fræðast um Afriku og það sem máli skiptir í þeirri heimsálfu. En þótt ég reyni að leggja mig allan fram get ég með engu móti skilið hvaða máli mbl.is telur það skipta fyrir íslenskan almúga þótt PDG flokkurinn í Gabon hafi ákveðið að staðfesta að Bongo yngri verði frambjóðandi í forsetakosningum þar í landi í ágúst.

Hvaða máli skiptir það fyri Jón eða Gunnu á Íslandi hvort flokksþing þessa annars ágæta flokks í þessu annars ágæta landi verði haldið á sunnudag. Sjáið þið fyrir ykkur að það hafi t.d. verið frétt í Gabon fyrr á þessu ári að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi ákveðið að bjóða sig fram sem formaður Framsóknarflokksins? "Ali Ben, veistu að Hr. Gunnlaugsson hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formaður Framsóknarflokksins á Íslandi" segir eiginkona Ali við morgunverðarborðið, lesandi gabonska Moggann. "Já elskan, mjög áhugavert. Er hann ekki fyrrverandi fréttamaður á RÚV" svarar Ali Ben um hæl. NEi, þetta eru ólíklegar kringumstæður.

En ég verð að viðurkenna að eftir að hafa "gúgglað" PDG flokkinn í Gabon (sem er líklega meira en blaðamaður mbl.is gerði sem hefur líklega copy/paste þessa frétt úr erlendum fréttamiðli af gífurlegum áhuga) er ég nú margs vísari um flokkinn, Parti Démocratique Gabon (stofnaður 1970).

En ef mbl.is ætlar á annað borð að koma með fréttir af mönnum og málefnum í Afriku má ég vinsamlegast biðja um aðeins áhugaverðari fréttir en af Bongo og Bongo og flokksþingi PDG flokksins. Það er örugglega af nógu öðru að taka í þessari fallegu og áhugaverðri heimsálfu.

Takk fyrir.


mbl.is Bongo í stað Bongo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska fána í hálfa stöng í dag

Af hverju í ösköpunum leyfir blaðamaður mbl.is sér að hafa mynd af íslenskum fánum til móts við Alþingishúsið sem var að taka gjörsamlega óskiljanlega ákvörðun í dag um aðildarviðræður við ESB? Ef sýna átti íslenskan fána við þessa kringumstæður á hann að vera dreginn í hálfa stöng eða frekar sýna ESB fánann umlykjandi elsta löggjafarþing heimsins til að lýsa vilja meirihluti þingsins.

Þingið er s.s. búið að samþykkja að ganga til aðildarviðræðna við ESB sem "bakkaði" Breta og Hollendinga upp í því að knýja þjóðina niður í mestu efnahagslegu nauðasamninga sem vestrænt ríki hefur þurft að undirgangast fyrr og síðar. Er þetta ekki með miklum ólíkindum. Þetta minnir á eitthvert meðvirknismunstur; þangað leitar klárinn þar sem hann er kvalinn eða eitthvað þvíumlíkt.


mbl.is Samþykkt að senda inn umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband