Fréttir (tímasettar) í pólitískum tilgangi?

Það er mjög, mjög, slæmt ef menn missa eigur sínar og harmleikur ekki síst ef það er vegna þess að viðkomandi hefur gengist í ábyrgð fyrir aðra. Það er þó enn verra þegar menn bera harmleiki sína, þ.m.t. fjölskylduharmleiki og vináttuslit fram í s.k. ,,opnum" bréfum dagblaðanna. Mér finnst það ólíkt Morgunblaðinu að leyfa birtingu á grein sem þessari og blaðinu til vansa. Þessi frétt er í algjörum ,,DV-stíl".

Ég er afar ósammála Birni Vali Gíslasyni í pólitík. Þessi grein birtist hins vegar á sama tíma og Björn Valur er mjög áberandi í umræðunni um ICESAVE og forsetann. Tilviljun?

Ég tek fram að ég er algerlega ósammála Birni Val í hans pólitík um ICESAVE o.fl. en mér hugnast lítt þessi fréttamennska og framsetning þessarar fréttar.


mbl.is Saknar vináttu sem glataðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ætli þetta sé svo mikil tilviljun með tímasetninguna. Það er barist á öllum vígstöðvum. Ég er sammála Birni Val varðandi ICESAVE þó ég sé ekki kjósandi VG. Förum ekki nánar út í það, eins og sagt er svo oft í Spaugstofunni.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.1.2010 kl. 01:06

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Takk fyrir innlitið Fríða. Alltaf gott að vitna í Spaugstofuna

Guðmundur St Ragnarsson, 7.1.2010 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband