Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

KFUM-liðið í úrslit. Til hamingju Haukar og Valur

Hann er líklega stoltur núna KFUM höfðinginn, Friðrik Friðriksson heitinn.
mbl.is „Fáum skemmtilegan KFUM slag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að treysta Ahmadinejad

Mikið lítur Ban Ki-moon illa út núna. Það var svo umdeilt að láta Íransforseta tala á ráðstefnu um kynþáttahatur að nokkur vestræn ríki ákváðu að sniðganga ráðstefnuna. Mér finnst það reyndar afar óskynsamleg ákvörðun enda betra að reyna að hafa áhrif á ráðstefnunni enda ekki vanþörf á í heimi fullum af kynþáttafordómum.

Hélt framkvæmdastjóri SÞ virkilega að Ahmadinejad myndi ræða knattspyrnu eða loftlagsvandamál með því að láta hann halda tölu í ráðstefnunni? Íransforseti hefur m.a. afneitað helförinni eins og kunnugt er.

Mér finnst utanríkisþjónustu landsins hafa sett niður. Fulltrúar yfir 20 evrópuríkja ákváðu að ganga af fundi í staðinn fyrir að sitja undir rasistaræðu Íransforseta. Ég er forvitinn að vita hvaða ríki gengi út af fundi á meðan á ræðunni stóð. Fulltrúar m.a. Noregs og Íslands sátu eftir sem er kannski táknrænt því íslensk stjórnvöld virðast ekki vilja eiga jákvæð diplomatísk samskipti við Ísrael eins og frændur þeirra jafnaðarmenn í Noregi.

Íslenskir fjölmiðlar eru líka alveg að standa sig. Utanríkisráðherra landsins þarf ekki einu sinni að svara spurningum um málið. Össur er ekki í fjölmiðlum nema hann óski eftir því sjálfur.


mbl.is Ban: Ahmadinejad brást trausti mínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kiddi "Sleggja" II.

Nei Bjarni Harðar. Var þetta þá rétt hjá Framsóknarmönnum eftir allt saman? Þú sért villuráfandi og umkomulaus sauður? Bóksalinn á Selfossi virðist ætla að feta í fótspor Kristins H. Gunnarsson og taka hringinn í litrófi stjórnmálanna. Það er líka hægt að skila auðu Bjarni Harðar1 Maður þarf ekkert endilega að kjósa flokka - allra síst á vinstri vængnum.

Veistu það ekki Bjarni Harðar að með því að kjósa VG ertu að tryggja áframhaldandi stjórnarsamstarf VG og Samfylkingar þar sem búið er að komast að niðurstöðu um að stuðla að þjóðaratkvæðagreiðslu (að vísu þarf stjónarskrárbreytingu til) um inngöngu í ESB?

Ég legg til að þú hugsir þinn gang. Farið upp í bóksölu og lesir Jón Trausta undir þjóðlegri tónlist, t.d. Vilhjálm Vilhjálmsson og þá sérðu vonandi eftir þessari vitleysu.


mbl.is Bjarni Harðarson styður VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær árangur í kynþáttafordómum

Fulltrúar Íslands á Durban II tóku þá sjálfir þá ákvörðun að sitja undir gyðingahatri forseta Írans en voru ekki að herma eftir fulltrúum Noregs. Mikið líður mér betur. Við hefðum getað sparað stórar fjárhæðir í kreppunni með því að láta utanríkisráðuneyti Noregs sjá um okkar mál. Við höfum góð tengsl sbr. Gamli sáttmáli, væntanlegur olíufundur og fleira skemmtilegt.

Margir fulltrúar annarra landa gengu út svo ofbauð þeim ræða forseta Írans. Fróðlegt væri að vita hvort utanríkisráðherra Íslands muni tjá sig um orð forsetans. Nokkur vestræn ríki tóku meira að segja ákvörðun um að sitja ekki ráðstefnuna vegna ótta um að þar væri gyðingahatur gert opinbert enda varð sú raunin.

Mér finnst utanríkisráðherra ekki geta skorast undan því að tjá sig um þessi mál. Hann hefur á stundum verið duglegur að tjá sig um málefni Ísraels á neikvæðan hátt. Eru skilboð fulltrúa Íslands á þessari ráðstefnu að samþykkja orð forseta Írans og þá fyrir hönd okkar allra?

Hvað segir Össur blessaður núna?


mbl.is Íslendingar taka sjálfstæðar ákvarðanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þögn Ólafs Ragnars og Jóhönnu Sigurðardóttur þrúgandi

Ég mun endurtaka neðangreint blogg mitt sem birtist fyrir viku, vikulega þangað til ég heyri í Bessastaða-bóndanum;

"Fjármála- og efnahagsstríð ríkir á Íslandi eins og öllum er ljóst. Erlendur sérfræðingur sagði meira að segja fyrir skömmu að Ísland hefði orðið fyrir "efnahagslegri árás". Ísland er það land Vesturlanda, þar sem efnahagshrunið er mest, dýpst og hefur mest áhrif á fjármálalíf, atvinnulíf og almenning.

Undir þessum fordæmalausu kringumstæðum hér á landi er þögn landshöfðingja okkar þrúgandi. Þögnin bergmálar um firði og fjöll, dali og sveitir landsins. Hvorki forseti lýðveldisins, hr. Ólafur Ragnar Grímsson eða forsætisstýran, Jóhanna Sigurðardóttir, reyna að stappa stálinu í þjóðina. Þegar þjóðir verða fyrir áfalli, náttúruhamförum, hryðuverkum eða eru í stríði reyna landshöfðingarnir að hughreysta landa sína með ávarpi/viðtali í sjónvarpi eða blöðum. En ekki hér á landi sem er að lenda í mestu erfiðleikum í tugi ára.

Einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að Kristján Eldjárn og Vigdís Finnbogadóttir hefðu farið öðruvísi að.
Er þögn eða feimni Ólafs Ragnars staðfesting á því að hann samsamar sig Útrásarvíkingunum og öðrum auðmönnum landsins þannig að þorir ekki að "fronta" samlanda sína? Þótt að Jóhanna Sigurðardóttir sé upptekin í kosningaslag er hún líka æðsti ráðherrann og stýrir landinu. Er eðlilegt að hún finni ekki hjá sér þörf til að ávarpa okkur sérstaklega og hvetja fólk til að gefast ekki upp í mótbyrnum?"


Virðingarvert Ásmundur og þótt fyrir hefði verið

Og nú spyr ég: Hvenær ætla íslenskir stjórnmálaleiðtogar þ.m.t. forsætisráðherra núverandi og fyrrverandi, aðrir bankastjórar, núverandi og fyrrverandi, Seðlabankastjóri, núverandi og fyrrverandi stjórar, stjórnarformaður FME núverandi og fyrrverandi OG forseti lýðveldisins hr. Ólafur Ragnar Grímsson SEM OG formenn stjórnarflokka núverandi og fyrrverandi sem og formaður Framsóknarflokksins núverandi og fyrrverandi að gera slíkt hið sama. Það er kominn fuc.... tími til. Þjóðin brennur og stór hluti þjóðarinnar er í þjáningu. Þið ráðamenn horfið í gaupnir ykkar á meðan!

Íslensk þjóð kann að meta auðmýkt og er fús að fyrirgefa - ef að auðmýktin er raunveruleg en ekki leikrit í pólitík eða eru falsheit andskotans.

Góðar stundir góðir Íslendingar (ekki þið sem enn eigið eftir að biðjast afsökunar).


mbl.is Baðst afsökunar á mistökum bankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbankastjóri biðst afsökunar

Á frétt RUV.is var þessi frétt:

,,Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Nýja Landsbankans, baðst afsökunar á þeim mistökum sem bankinn gerði fyrir hrun í ræðu sem hann flutti á starfsdegi bankans í morgun.

Hann vill fyrir hönd bankans biðja íslenskt samfélag afsökunar á hlutdeild bankans í þeim vanda sem þjóðin stendur frammi fyrir í dag.

Ásmundur sagði að hraðinn í gamla bankaumhverfinu hefði verið of mikill. Hlaupið hefði verið í fjármögnun á skuldsettum yfirtökum án þess að farið hefði verið í saumana á öllum forsendum. Framvirkir samningar hefðu gengið lengra en að vera vörn gegn áhættu. Þeir hafi orðið að veðmáli um þróun gjaldmiðla. Verklagsreglur hefðu oft á tíðum verið viðmiðun frekar en fyrirmæli.

Hann sagði mikilvægt að stjórnendur og starfsmenn Nýja bankans væru ekki í feluleik. Þeir gætu ekki skorast undan því að axla ábyrgð á mistökum fortíðarinnar. Það væri eina leiðin til að ná sáttum við umhverfið að nýju.

Orðrétt sagði Ásmundur: Ég leyfi mér fyrir hönd stjórnenda Landsbankans að biðja almenna starfsmenn hans afsökunar á því umhverfi sem ykkur var búið og þeim mistökum sem gerð voru við stjórnvölinn. Ég vil jafnframt nota þetta tækifæri sem bankastjóri Landsbankans og biðja fyrir bankans hönd íslenskt samfélag afsökunar á hlutdeild bankans í þeim vanda sem þjóðin stendur frammi fyrir í dag."

ÞETTA VILJUM VIÐ SJÁ MEIRA AF. ÉG ER BÚINN AÐ REYNA AÐ SEGJA FRAMSÓKNARMÖNNUM AÐ GERA SLÍKT HIÐ SAMA EN TALAÐ FYRIR DAUFUM EYRUM. TAKK FYRIR ÁSMUNDUR AÐ RÍÐA Á VAÐIÐ. VONANDI GETUR ÍSLENSK ÞJÓÐ FYRIRGEFIÐ YKKUR!


Sérstakur saksóknari rannsaki málið

Getur kannski verið að leiðtogafundurinn í Höfða árið 1986 hafi verið að undirlagi íslenskra útrásarvíkinga? Hvar var Bjarni Ármannsson þegar Reagan hitti Gorbatsjov?

Hver á Höfða raunverulega? Getur verið að búið sé að skipuleggja verslunar- og skrifstofuturn á lóðinni? Almenningur á rétt á svörum.


mbl.is Höfðafundurinn gerður upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er í efnahagsstríði og hvar eru landshöfðingjarnir?

Fjármála- og efnahagsstríð ríkir á Íslandi eins og öllum er ljóst. Erlendur sérfræðingur sagði meira að segja fyrir skömmu að Ísland hefði orðið fyrir "efnahagslegri árás". Ísland er það land vesturlanda, þar sem efnahagshrunið er mest, dýpst og hefur mest áhrif á fjármálalíf, atvinnulíf og almenning.

Undir þessum fordæmalausu kringumstæðum hér á landi er þögn landshöfðingja okkar þrúgandi. Þögnin bergmálar um firði og sveitir Íslands. Hvorki forseti lýðveldisins, hr. Ólafur Ragnar Grímsson eða forsætisstýran, Jóhanna Sigurðardóttir, reyna að stappa stálinu í þjóðina. Þegar þjóðir verða fyrir áfalli, náttúruhamförum, hryðuverkum eða eru í stríði reyna landshöfðingarnir að hughreysta landa sína með ávarpi/viðtali í sjónvarpi eða blöðum. En ekki hér á landi sem er að lenda í mestu erfiðleikum í tugi ára.

Einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að Kristján Eldjárn og Vigdís Finnbogadóttir hefðu farið öðruvísi að.
Er þögn eða feimni Ólafs Ragnars staðfesting á því að hann samsamar sig Útrásarvíkingunum og öðrum auðmönnum landsins þannig að þorir ekki að "fronta" samlanda sína? Þótt að Jóhanna Sigurðardóttir sé upptekin í kosningaslag er hún líka æðsti ráðherrann og stýrir landinu. Er eðlilegt að hún finni ekki hjá sér þörf til að ávarpa okkur sérstaklega og hvetja fólk til að gefast ekki upp í mótbyrnum?

Mér finnst þetta allavega með miklum ólíkindum.


Kolbrún "Líf" Halldórsdóttir

Þetta er hið besta mál Kolbrún. Þú verður reyndar ekki ráðherra nema í hvað 2-3 vikur til viðbótar og kannski verður eftirmaður þinn blóðþyrstur hreindýrahatari. Ég vona samt að eftirmaður þinn verði ekki á annarri skoðun en þú. Lifi Líf! Lifi lýðveldið (ennþá) Íslandi!

Kolbrún. Ég legg til að þú hafir samband við Þjóðskrá og takir upp millinafnið "Líf".


mbl.is Mun tryggja að Líf fái líf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband